Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

miðvikudagur, janúar 25, 2006 Real live aussie !!

Það er australia day á morgun og afmæli Áslaugar. Í tilefni þess fórum við með Thor jr. í klippingu. Hérna sjáið þið afrakstur þess.



Stelpan sem að klippti hann var svo hrifin af þessu að hún tók myndir af þessu til að eiga.

Enda er þetta rosaleg klipping....

og módelið er ánægður með sig...


Happy Australia day.

föstudagur, janúar 20, 2006 Tennis og krikket

Hversu lengan tíma tekur það mann að aðlagast nýju landi? Í febrúar erum við búin að vera hérna í Perth í heilt ár. Ég er byrjaður að horfa á tennis og krikket!! Ég stóð sjálfan mig að því að vera að ræða um krikket við einn nýsjálending um daginn og horfði á Ástralíu keppa við Suður Afríku. Í gær horfði ég spenntur á þegar heimamaðurinn ástralinn Layton Hewitt datt úr keppni á móti einhverjum argentínumanni. Leikurinn tók 3 klukkutíma! Það var frekar fyndið að hlusta á þulinn í sjónvarpinu. Þegar Layton var að skít tapa þá sögðu þulirnir bara: "Núna er argentínumaðurinn búinn að vera - hann getur ekki haldið út í 3 klukkutíma á móti Layton - núna kemur þetta". Ég trúði þessu alveg og auðvitað tapaði Layton 5 mínútum seinna og þulirnir þögnuðu. Þetta var eins og að hlusta á íslenska þuli lýsa tapleik hjá íslenska landsliðinu í handbolta. Ég varð mjög svekktur þegar minn maður tapaði!! Það huggaði mig að Ástralíu vann Suður Afríku í krikket. Einnig er Ástralía komin í úrslitakeppni HM í Þýskalandi 2006 og það gleður mig.

Ég veit ekki hvort að maður sé orðinn eitthvað ástralskur í sér. Kannski tekur það eitt ár að komast almennilega inn í nýtt umhverfi... kannski er maður orðinn smá ástralskur. Ég grilla þrisvar í viku, slátrarinn þekkir mig með nafni og ég fylgist með aðeins með veðreiðum, tennis, krikket og áströlskum fótbolta. En ég er víst ekki alveg búinn að aðlagast. Ég ætti að fylgjast með þessu alla daga og drekka bjór með. Ef ég geri það þá fæ ég víst ríkisborgararétt.....

miðvikudagur, janúar 18, 2006 Dæmi um hvernig son við eigum!

Loksins ákvað sonur okkar hjóna að hætta að nota bleyjur. Ég keypti kopp og var farin að reyna að fá hann til að pissa í hann áður en við fluttum hingað út, sem sagt fyrir nærri ári síðan. Ég tók svo aftur upp koppaþjálfun um tveggja ára afmæli Thors, en ekkert gekk. Föstudag fyrir rúmri viku ákvað Thor svo að hann væri hættur að nota bleyjur og hætti bara eins og ekkert væri. Hann er þrjóskur með eindæmum. Þegar Thor fór svo á leikskólann eftir þessa ákvörðun sína, ákvað hann að hann væri ekki hættur með bleyju á leikskólanum. Hann fékk því bleyju þar, þegar Angela sagði honum að foreldrar hans færu að koma að sækja hann vildi hann losna við bleyjuna strax. Bara svo ekki kæmist upp um þennan sérsamning hans við leikskólastelpurnar. Thor er mikill samningamaður.

föstudagur, janúar 06, 2006 Siðasti dagur jola.

Jæja þá erum við aftur orðnar munaðarlausar systurnar. Mamma og pabbi eru lögð af stað heim en ekki komin á leiðarenda.
Við erum búin að eyða jólunum í góðum gír. Fara á ströndina, borða góðan mat og skoða borgina okkar. Við hjónin höfum verið að fræða vini okkar hérna um íslensku jólasveinana. Sumir álíta okkur (Íslendinga) eitthvað klikk öðrum finnst þetta mun áhugaverðara en þessi feiti rauði og vilja taka upp siðinn að hafa þá 13 í stað eins. Flestum finnst þó þessi árátta að éta börn (Grýla og jólakötturinn) eitthvað meira en undarleg. Verð að viðurkenna að þegar maður segir svona frá þessu er þetta svolítið skrýtið.
Það hefur margt spennandi gerst hjá syni okkar um jólin. Hann er farin að geta pissað í kopp meira en 10 dropum í einu. Hann er nú samt ekki alveg hættur með bleyju, við tökum bara einn dag í einu. Hann er líka orðin brúnni en mamma sín, þrátt fyrir sólarvarnarbað á hverjum morgni og nokkrum sinnum eftir það. Svo er Thor líka komin með nokkrar freknur í andlitið, sem er ekki algent á litlum börnum. Hann verður örugglega brúnn með freknur eins og pabbi sinn, ég verð svo bara með freknur. Ég hélt við værum öll rauðhærð en ég virðist vera sú eina á þessu heimili sem er þeim kostum gædd.
Best að fara að koma sér út í sólina og vinna í tan-inu áður en næstu gestir koma. Get ekki alltaf verið hvítust... ég meina fólk er að koma úr Íslenskum vetri og slær mér samt við á nokkrum dögum hérna. Spáin er "hot and humid" max 37 gráður, loksins komið sumar í vestur Ástralíu.
Nýjar myndir á myndasíðunni.

þriðjudagur, janúar 03, 2006 Nytt ar

Þá er komið nýtt ár. Gamla árið var ansi ævintýralegt hjá okkur fjölskyldunni og vona ég að það nýja verði það líka. Svo má alvaran fara að taka við eftir það. Við hjónin eigum í basli með að ákveða hvernig framtíðin eigi að vera. Þessi áramót áttu að vera tími ákvarðana en við erum enn jafn áttavilt.
Mamma og pabbi eru hérna einn dag til viðbótar og svo er þeirri sælu lokið. Þetta er svona. Við systur og sonurinn höfum farið með þau um Perth þvera og endilanga, Thor hefur þurft að vera meira heima til að sinna vinnu.
Áramótin voru með rólegra móti á þessu heimili, við borðuðum bestu nautasteikur veraldar held ég bara, skáluðum í kampavíni á miðnætti og fórum svo fljótlega að sofa. Við hjónin gengum niður að á og sáum rosalega flugeldasýningu rétt fyrir miðnætti. Engin þynnka þennan nýársdag. Fórum svo í dýragarðinn á nýársdag, Perth Zoo er rosalegur garður. Stoppuðum á barnum á leiðinni heim úr garðinum vegna hita og fengum okkur einn svell kaldan. Planið var að horfa svo á áramótaskaupið á netinu, þeir voru nú ekki svo hugulsamir á RÚV að setja það inná síðuna sína. Við systur höfum verið að semja kvörtunarsímtalið síðan á nýarsdag en ekki enn hringt. Höldum að þeir fatti ekki alveg alvarleikann þarna.
Hafið það gott þangað til næst.

Powered by Blogger

Eldra blogg