Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

laugardagur, júlí 23, 2005 Snake and more snake !

Dagur vinur okkar, benti okkur réttilega á að það eru ekki með venjulegar árstíðir í Ástralíu. Það er ekki vetur, vor, sumar og haust heldur snake og more snake. Það er sumar á Íslandi núna en snake hjá okkur og við erum að sigla inn í more snake. Það er búið að vera svolítið kalt þennan snake og okkur hlakkar mjög til að geta farið á ströndina þegar það kemur more snake.

Ég verð líka að segja ykkur frá því að það var verið að setja upp nýtt skilti í götuna okkar. Þar sem það hefur verið nokkuð af villidýrum í götunni undanfarið þá verður víst að vara fólk við.

















Hérna fyrir neðan er mynd úr bakgarðinum okkar en við þurfum að leggja bílnum á bakvið tréin og labba smá til að komast inn í hús. Það er nokkuð mikið af slöngum þarna en við erum orðin vön því.



Þar sem að allir í Ástralíu eiga kengúru gæludýr þá ákváðum við að fá okkur eina. Fólk er líka sektað ef það á ekki kengúru þannig að þetta kemur betur út fjárhagslega.

Kengúran heitir Dagur og var skýrð í höfuðið á vini okkar. Annars var Áslaug að setja inn fleiri myndir á síðuna sína og þegar það kemur more snake þá fáið þið að fleiri myndir frá ströndunum hérna í kring.

laugardagur, júlí 16, 2005 Ættingjar komnir

Nú eru Katrín og Grétar mætt til Perth. Þau komu um miðjan dag á miðvikudag. Mjög gaman að fá þau og einstaklega gott að fá til sín gesti. Þau eru náttúrulega bara tímabundnir gestir hjá okkur en langtíma gestir í Perth. Þau eru aðeins farin að kíkja eftir íbúð til að búa í en eru ekki alveg viss um hvar sé best að vera. Það eru bara svo mörg spennandi hverfi hérna.
Síðan þau komu höfum við farið um Fremantle, skoðað skólanna þeirra, nokkur hverfi hérna í kring og miðbæinn. Strákarnir kíktu svo á næturlífið í gær en við systur vorum bara heima.
Annars er allt bara í sómanum hérna og líklegast höldum við í lautarferð á morgun því spáð er góðu verðir hérna á morgun. Mín von er að veturinn sé að verða búinn og tími komin á okkar 9 mánaða sumar. Sjáum svo hvers ég óska þegar hitinn fer að nálgast 40 gráðurnar í sumar.
áslaug

laugardagur, júlí 09, 2005 Hotel South Perth og syklalyf.

Þá er gestaherbergið tilbúið í bili í það minnsta. Það eru auðvitað komnar myndir inná síðuna mína af þessu öllu. Þetta er eins og á besta hóteli get ég sagt ykkur. Það er útgengt á svalir með útsýni yfir borgina (besta útsýni í bænum að margra mati), internet aðgangur, queen size rúm með Laura Ashley rúmfötum (kannski pínu stelpó), einka WC og svo náttúrulega eðal húsfélagar. Það þarf bara að koma sér hingað niður eftir sem tekur nokkra tíma í flugvél. Síminn er opinn fyrir pöntunum. Hljómar þetta ekki svolítið eins og hótel bæklingur?
Við fengum okkar fyrstu næturgesti í gær. Systkinin Ásgeir og Katrín komu og gistu hjá okkur. Nú höfum við fengið innsýn inní þann heim að eiga þrjú börn, sjáum svo til hvort að sonur okkar verði ekki bara einkabarn okkar hjóna. Nei annars þetta gekk eins og í sögu og allir höguðu sér vel. Enda var bara dælt frostpinnum í liðið og horft á ógrynni af Simpson.
Thor hefur verið með kvef og er nú komin með eyrnabólgu. Hann er farin að taka sýklalyf og er þá eins gott að eiga mömmu sem er öllum hnútum kunn í þeim efnum. Ég er búin að læra inná læknakerfið hérna og finna einn ágætis mann sem við gætum haft sem heimilislækni á meðan við búum hérna. Það er líka myndasíða af veikum syni okkar og næturgestunum.
Jæja er eitthvað andlaus að segja fréttir, vildi bara koma gestaherberginu á netið svo Katrín og Grétar viti hvað þau eru að koma í eftir 4 daga.
Áslaug

miðvikudagur, júlí 06, 2005 Kaldasti dagur vetrarins og islensk kjötsupa

Í dag var kaldasti dagur vetrarins hér í Perth í ár, hingað til alla veganna. Ég ákváð því að hlýja okkur fjölskyldunni með því að elda íslenska kjötsúpu. Hún heppnaðist bara nokkuð vel. Ég þakka Maríu mömmu Auðbjargar fyrir að færa mér súpujurtir, annars hefði ekki verið kjötsúpa á borðum hérna.
Gestaherbergið er að verða til og ætla ég að setja inn myndir af því fljótlega. Við hjónin settum saman rúmgrindina sem kom frá IKEA í dag en við vorum búin að kaupa dýnu í Bed Shed (gott nafn á búð eða þannig), auðvitað á tilboði. Svo er bara að bíða viku í viðbót og þá sofa Katrín og Grétar í gestarúminu.
Ég er alltaf að verða meiri og meiri tölvusnillingur. Ég bjó til myndband í dag úr nokkrum stuttum upptökum sem við tókum í ferðinni okkar síðustu helgi. Þið getið séð afraksturinn á heimasíðu minni. Ég er viss um að apple fer fljótlega að hafa samband við mig og biðja mig að tölvunördast fyrir þá :)
Læt þetta duga í bili,
Áslaug

mánudagur, júlí 04, 2005 Proflok og vetrarfri!

Þá eru próf og verkefnaskil yfirstaðin hjá mér. Mér hefur gengið vel í skólanum og er að standast eigin kröfur um skólagengi. 1/3 búin af mastersnámi mínu. Það er bara nokkuð gott. Ég hef verið dugleg að halda uppá það að vera búin með þennan áfanga. Strax eftir síðasta próf hélt partur af bekknum á krá og þar var skálað fyrir ágæti okkar sjálfra. Tveimur dögum síðar bauð Keith bekkjarbróðir minn frá New Jersey okkur heim. Bróðir hans og vinur eru í heimsókn hérna hjá honum og bróðir hans eldaði ofan í mannskapinn Philly cheese steak (svipað og Hlölli en vantaði Hlöllasósuna). Það var mjög góður matur og skemmtilegt partý. Við gátum ekki orðið okkur út um barnapíu fyrir það kvöld svo Thor kom bara með í partý. Hann er greinilega mjög partý glaður maður. Veit ekki hvort ég hlakka til unglingsáranna hans.
Kvöldið eftir laugardaginn 25. júní buðum við vinum okkar Auðbjörgu og Erlendi ásamt Fjólu og móður Auðbjargar og móðursystur í grill. Það var auðvitað boðið uppá naut og rækjur - en ekki hvað. Það var mjög skemmtilegt kvöld sem stóð til að verða tvö um nóttu. Þetta var kveðju matarboð fyrir Auðbjörgu og Erlend því þau eru flutt heim. En þetta var líka velkomin til Ástralíu matur fyrir Maríu og Vigdísi (móðir og móðursystir).
Það var mest lítið gert í byrjun síðustu viku en við hjónin fórum niður til Fremantle á miðvikudag að hitta nokkrar bekkjarsystur mínar og fórum í bíó. Sáum Batman begins og fengum heimþrá við að sjá föðurlandið í myndinni. Fjóla kom og passaði prinsinn. Það gekk ótrúlega vel, hún kom honum í rúmið á réttum tíma og allt gekk eins og í sögu. Hún kann greinilega tökin á þessu.
Svo kom ferðahelgin mikla. Það má sjá myndir og fréttabréf um ferðina á heimasíðu Áslaugar. Við sem sagt keyrðum um 2 þús. kílómetra og sáum margt fallegt og höfðum það bara mjög gott. Feðgarnir fengu að gefa höfrungi fisk einn morgun og svo pelikana næsta morgun. Það sem sonur okkar er ekki búin að upplifa á stuttri ævi er fátt. Thor fann nokkra báta sem hann segist eiga og við foreldrarnir skiljum ekkert í því afhverju barnið bíður okkur aldrei í siglingu. Thor segir mjög oft þessa dagana "kaupa bát", hann verður örugglega siglingamaður mikill. Það var ósköp gott að koma heim til Perth í sitt rúm eftir langa ferð.
Næst á dagskrá er að gera allt til áður en Katrín og Grétar mæta á svæðið. Það er sko mikil tilhlökkun hérna megin. Svo þarf ég nú líka að læra smá fyrir lokaverkefnið mitt. Er nokkrun vegin komin með efni sem ég vil rannsaka þannig að nú er best að gera heimildaleit.
Hafið það sem best, þið sem nenntuð að lesa þetta allt.
Áslaug

Powered by Blogger

Eldra blogg