Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

þriðjudagur, nóvember 07, 2006 Czechlodging.com

I just put up a web page www.czechlodging.com

sunnudagur, október 29, 2006 Just put up a new web page

Visit Czech Lodging if you need a place to stay when you are visiting Prague - Czech Republic.
http://www.czechlodging.com/

Visit Czech Lodging if you need a place to stay when you are visiting Prague - Czech Republic.
http://www.czechlodging.com/

þriðjudagur, maí 09, 2006 Heim á klakann

Þá er Ástralíu ævintýrið senn á enda. Við erum búin að kaupa flugmiða heim. Við förum frá Perth til Singapore 14.júní og stoppum í 2 daga. Síðan förum við til köben 17.júní að heimsækja vini okkar sem búa þar og fljúgum síðan til Íslands 21.júní.

Það er margt sem maður hefði viljað sjá í Ástralíu áður en maður færi heim. En það er líka mjög margt sem við höfum fengið að upplifa og kannski erfitt að ná öllu.

Okkur hefur alltaf langað til að fara og skoða Melbourne þannig að við ætlum að skella okkur í helgarferð um næstu helgi. Thor jr. ætlar að koma með okkur og er búinn að láta okkur vita að flugvélin sé blá á litinn. Hann verður eflaust fyrir vonbrigðum þegar hann sér að Quantas er með hvítar og rauðar flugvélar. Þetta verður svona smá æfing fyrir 12-13 tíma flug frá Singapore til Köben.

Þegar við fluttum til Ástralíu þá gáfu bræður mínir okkur 100 dollara svo að við gætum ferið að að heimsækja Harald Bishop en hann er karekter í sápuóperunni "Nágrannar" sem er tekin upp í Melbourne. Við ætlum að sjá til hvort að við förum að heimsækja Ramsey street! En ég kynnti mér þetta aðeins og það er hægt að fara að heimsækja stúdíóið - og ég heyrði að framleiðendur þáttanna eru búnir að banna leikaranum sem leikur "Toby" eða "Körtuna" að taka á móti gestum. Hann er víst búinn að sofa hjá svo mörgum konum sem að koma þarna að það er orðið vandamál.... það held ég nú

mánudagur, maí 01, 2006 Afmæli verkalýðsleiðtogans

Thor jr. á afmæli í dag.


"It's my birthday day" eins og hann segir sjálfur. Við héldum afmælisveislu fyrir hann í gær. Nokkrir vinir okkar komu og fengu sér kökur og gos. Thor fannst best að gestirnir komu með pakka. Við gáfum Thor litla tölvubók (leap pad), tölva sem les bækur, kennir börnum að reikna og undirbýr þau fyrir lestrarkennslu. Thor tók tölvuna sína og sagðist ætla upp að vinna eins og pabbi. Það læra börn sem fyrir þeim er haft!

Thor fékk fótboltabúning í gjöf og var mjög ánægður. Verst að þetta er ekki rétta liðið.

Í dag hélt Thor uppá afmælið sitt á leikskólanum, við fórum með köku með nammi á og vakti það mikla lukku. Thor var áður búin að segja öllum á leikskólanum að hann ætti afmæli í dag. Vildi greinilega ekki missa af hamingjuóskum.


Kaka 2 daga í röð kemur skapinu í lag.

sunnudagur, apríl 16, 2006 Gleðilega paska

Þá er komið að páskum aftur. Við höfum verið að ræða það hvað allt virðist fara í hringi hérna. Við erum farin að upplifa árlega atburði hérna aftur sem segir aðeins eitt. Við erum búin að vera hérna meira en ár. Lætur manni líða eins og maður hafi verið lengi í burtu en líka að maður sé orðin hluti af samfélaginu. Það er ekki allt nýtt lengur.
Páskahelgin er búin að vera góð hjá okkur fjölskyldunni.
Í gær fórum við í BBQ í Victoria garðinum í East Perth ásamt öðrum Íslendingum hérna í Perth. Það var komin tími á að hittast og nokkrir nýjir Íslendingar bættust í hópinn. Við fengum rjómaveður og þetta var sérlega vel heppnað grill. Við hjónin höfðum búið til remúlaði eftir uppskrif landsliðskokka Íslands, þannig að nú var hægt að fá sér eina með öllu. Remúlaði er einmitt marg rædd fæða í Íslendingafélaginu í Perth.
Eftir grillið fórum við svo í eins árs afmæli nágranna okkar. Þetta var ólíkt öðrum barnaafmælum sem við höfum farið í. Þarna var í boði kampavín og bjór ásamt þessu venjulega, kökur og annar matur. Þar sem við vorum ný komin úr grilli sötraði ég því bara kampavín með húsfrúnni sem var orðin ansi kennd þegar við fórum.
Við fengum send páskaegg að heiman og Thor er búin að vera ákvaflega spenntur fyrir páskunum. Hann var því fljótur að segja mér í morgun að það væru komnir páskar og tími á eggin. Nú er eggið hans farið sína leið upp í munn og ofan í maga.
Katrín og Grétar komu í hádegismat, þetta var eins og á alvöru sveitaheimili. Pörusteik, heimagert rauðkál, sósa og brúnaðar kartöflur í sunnudagshádegi. Katrín þarf að vinna í kvöld og því var kvöldmatur í hádeginu.
Fyrir elju í eldhúsinu hef ég fengið viðurnefnið Martha Stuart á meðal ungra námsmanna hérna. Ég vona svo bara að ég endi ekki í fangelsi eins og hin eina sanna Martha.
Gleðilega páskahátíð allir saman.

föstudagur, mars 24, 2006 Hann er útsmoginn þessi litli kall

Hérna eru nokkrar sögur af Thor sem við viljum ekki gleyma og ætlum að geyma hérna.

Þegar hann vill segja að honum finnist eitthvað skemmtilegt þá segir hann "I'm like that".

Fjóla kom til að passa Thor um daginn. Thor fór strax í það að prófa hvað hann kæmist upp með hjá henni. Hann mátti fá nammi. Hann mátti fá horfa á sjónvarpið. Hún vildi leika það sem hann vildi leika. Það tók hann eina mínútu að átta sig á þessu og fleiru.

Til að sjá hversu duglegur þessi þjónn var þá settist hann á gólfið og sagði við Fjólu: "Thor kann ekki að labba". Hann tók í annan fótinn og sýndi henni og sagði: "Thor er með of litla fætur".

Ég held að með þessu hafi hann viljað láta Fjólu labba með sig útum allt. Svona eins og afi hans fékk að gera þegar hann kom í heimsókn.

Hann vildi fara út að hjóla í gær og sagði við mömmu sína í gær "Ég ætla að hjóla langt langt langt þannig að þú sérð mig ekki."

Síðan ætlar hann að fljúga einn til Íslands í bláu flugvélinni mamma hans og pabbi eiga að vera í rauðu flugvélinni. Hann vill ekki stoppa í Tælandi, Singapore, London eða Köben á leiðinni heim. "Fyrst til Íslands" sagði hann.

Við erum hætt að gefa honum nammi nema á laugardögum sem við köllum nammidag. Hann er sáttur við þetta og hættir að suða um eitthvað þegar hann heyrir að það er ekki nammidagur. En það eru bara tveir dagar í vikunni hjá honum. Þegar við segjum að það sé ekki nammidagur þá segir hann "ohhh, já það er sunnudagur" og þegar hann er svo spurður hvað klukkan er þá er hún alltaf átta.

Thor spurði mig hvort að ég vildi taka sængina hans niður í stofu og ég sagði já þá varð hann mjög hissa og sagði: "Ha þú sagðir já en ekki nei".

miðvikudagur, mars 22, 2006 Naglfar raiders og ANA rowing regatta 2006

Ég var að setja inn myndir frá róðrarkeppnisdeginum mikla.
Liðið skipaði fremst Kvitka (Kanada), Chris (Ástralía), ég (Ísland) og Deanna (Kanada) aftast . Eins og þið sjáið var þetta alþjóðlegt lið. Liðið okkar fékk nafnið Naglfar raiders. Naglfar er auðvitað skip hinna dauðu úr goðafræðinni og raiders var viðbót komin frá Chris svo ástralir gætu borið fram amk hluta nafnsins, og eins og hann benti á voru víkingar raiders (árásarmenn). Chris hannaði svo mynd á boli fyrir okkur sem skapaði auðvitað heilmikinn liðsanda.
Eftir 5 æfingar, sem er staðlaður fjöldi fyrir keppnina, hittust 40 lið á sunnudagsmorgni til að keppa um sigur. Við fórum því miður ekki heim með bikarinn, en þóttum standa okkur vel. Við vorum eina (kynja)blandaða liðið og urðum því að keppa við karlaliðin. Fyrra liðið sem við kepptum við vann okkur nokkuð vel, en seinna liðið vann okkur með einnar sekúndu mun. Ég var öskuill yfir þessu tapi, en maður verður bara að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti. Best var samt að seinna liðið var eitthvað að kommenta við okkur við ráslínuna að við væri bara stelpulið, það hlýtur að svíða að vinna svo ekki með meira en 1 sek. mun!
Við vorum alla veganna með bestan tíma í okkar riðli, eins og eiginmaður minn benti mér á. Riðillinn var blönduð lið!
Planið er svo að æfa á miðvikudagskvöldum þar til tími liðskvenna er liðin í Ástralíu. Ég held það verði ekki fleiri keppnir haldnar á þeim tíma, en ef svo væri, væri ég til í slaginn.

Powered by Blogger

Eldra blogg