Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

sunnudagur, mars 27, 2005 Mac vs. PC

Við hjónin erum komin bæði með tölvu. Áslaug fékk sér MAC - Þar sem að ég kann ekkert á MAC þá hefur hún þurft að hakka sig í gegnum OS X stýrikerfið. Hún er núna svo mikill tölvuhakkari að hún er komin með eigin heimasíðu. Á heimasíðunni hennar ætlar húna að setja upp myndaalbún þannig að ef að fólk vill sjá myndir frá WA skellið ykkur þá á heimasíðu Áslaugar http://homepage.mac.com/aslaugk/.

Ég veit að þið viljið sjá myndir af mér en okkur finnst víst skemmtilegast að taka myndir af Thor jr.

Þá er komið páskafrí hjá okkur hérna á Coode stræti. Við höfum verið að njóta þess sem borgin okkar hefur uppá að bjóða síðustu daga. Við fórum í gær uppí Swan Valley sem er um 30 mínútna akstur heiman frá okkur. Þar smökkuðum við vín sem dalurinn hefur gefið af sér og heimsóttum súkkulaði verksmiðju. Við versluðum náttúrulega súkkulaði fyrir páskana til þess að reyna að gleyma Nóa Siríus páskaeggjum. Við versluðum líka vín beint frá bóndanum, mjög gaman að kaupa vín sem maður er búin að smakka. Þá veit maður að hverju maður gengur. Við gleymdum myndavélinni heima þannig að það verða engar myndir út Swan Valley í þetta skiptið.
Ég er í fríi frá skólanum í eina viku núna sem er mjög gott. Þá get ég náð aðeins stressmörkunum niður og lesið.
Set nokkrar myndir af þeim litla - þar sem hann er aðal aðdráttaraflið að síðunni. Hann fékk höfuðfatið í mall-inu í gær og svo var bara ákveðið að við mundum vera svolítið áströlsk og gefa honum páskakanínu en ekki egg. Vegna hita þurfti að geyma kanínuna í ískápnum. Thor situr á gólfinu í eldhúsinu og speglaði sig reglulega í ískápnum sem er við hliðina á honum á myndunum. Hann sagði við "ískápa Thor" nammi og brosti út að eyrum.
Njótið páskanna og munið að páskarnir eru gömul frjósemishátíð sem var svo breytt með kristinni trú.
Áslaug

laugardagur, mars 19, 2005 Lazy saturday

Ástralir eru þekktir fyrir að drekka mikinn bjór. Á sunnudögum taka þeir sunday session - en þá fara þeir á barinn klukkan í kringum hádegið og drekka bjór til fjögur. Eftir það fara þeir heim og grilla og mæta síðan góðir í vinnuna daginn eftir.

Þeir eiga mikið úrval af góðum bjór hérna og við erum búin að smakka nokkrar tegundir og er bjórinn hérna sérstaklega góður í miklum hita. Ástralir eru hressir og svolítið skrítnir. T.d. heitir Burger King í Ástralíu "Hungry Jacks" og Opel bílategundin kallast Holden og er framleiddur í Ástralíu. Segja "no worries" við öll tækifæri og kalla mann "mate".

Í Ástralíu eru 5000 baðstrendur og klukkan 9 í morgun skelltum ég og Thor jr. okkur á eina með norska vini okkar Erlend (kærasti Auðbjargar sem býr í Perth). Thor var frekar ánægður með ströndina og vildi helst hlaupa út í sjó. Ég þurfti því að passa hann svolítið vel.

Hérna eru nokkrar myndir.



Hérna er yngsti brimbrettagaurinn á ströndinni.



30 sek. seinna var þessi dottinn á andlitið.



Hérna er útsýnið í hina áttina


Thorsi frekar ánægður í hvert skipti sem hann fór í vatnið.

Thor jr. kallar ströndina núna búmm búmm. Í hvert skipti sem að aldan skellur heyrist smá hvellur. Eftir nokkra tíma á ströndinni keyrðum við til Subiaco og fengum okkur pizzu og Pepsi á ítölskum pizza stað. Núna er erfiðast að ákveða hvort að maður eigi að grilla kjúkling eða nautakjöt í kvöld. Lazy saturday í dag - spurning hvort að það verður sunday session á morgun?

sunnudagur, mars 13, 2005 Jaws, Finding Nemo & Teenage Mutant Ninja Turtles

Ég fór með jr. á leikvöllinn í morgun og lékum okkur í sandkassanum og "víííí" eins og hann kallar rennibrautina í 2 tíma. Síðan fórum við heim og fengum okkur hádegismat og jr. lagði sig. Áslaug lærði um morguninn og þegar jr. vaknaði þá fórum við öll á sædýrasafnið hérna í Perth. Það var bara nokkuð gaman að sjá krókódíla, risa skjaldbökur, hákarla, risa skötur og önnur kvikindi eins og allt castið úr Finding Nemo.

Við löbbuðum í gegnum gler göng í risa stóru fiskabúri þar sem að hákarlar voru að synda við hliðina á manni. Jr. ákvað að kalla sköturnar Masi og vildi meina að þær væru að fara lúlla. Ef þið viljið þá er hérna stutt myndband af einni skötu.

Eftir sædýrasafnið fórum við á matsölustað á risa bryggju sem er alveg við safnið - en á bryggunni er verslunarmiðstöð með veitingastöðum, búðum, bíla- og bátastæðum. Verst að eiga ekki bát.

Þessar mynd er tekin frá Fish and Chips staðnum sem við borðum djúpsteiktar rækjur, djúpsteiktan smokkfisk og franskar. Eins og margir vita þá er ég mikill áhugamaður um máva og viti menn það ákvað einn einfættur að kíkja á borðið við hliðina á okkur. Jr. kallaði bíbí og ég bölvaði það að vera ekki með haglabyssuna.

Síðan fyrir þá sem kíkja á þessa síðu til að fylgjast með ævintýrum Thors yngri þá er hann kominn með allar tennurnar.

Thor ætlar að vera allan daginn á morgun í leikskólanum, hann talar um ís uppúr svefni og uppáhaldsmyndin hans er Söngvaborg 3.

föstudagur, mars 11, 2005

Tíminn flýgur hérna down under. Skólinn er kominn á fullt, ég er búin að læra fullt af nýjum dónaorðum. Var í tíma þar sem við áttum að skrifa niður í hópum orð sem tengjast kynlífshegðan. Það kom margt fyndið fram þarna. Tilgangurinn var sem sagt að láta okkur venjast því að tala um kynlíf, finna út hvað okkur finnst í lagi að segja og svo við skiljum framtíðar skjólstæðinga okkar þegar þeir eru að lýsa gjörðum sínum. Ég var náttúrulega beðin um að segja og skrifa nokkur íslensk orð. Alltaf höfð sem svona til sýnis nemandi. Var líka orðin þekkt innan skólans (School of Public Health) á meðal kennarana áður en ég kom hingað. Allir vita að ég er til þó þeir hafi ekki hitt mig. Flestir segja við mig "oh your the girl from Iceland" næst á eftir kemur "hvernig gengur að venjast hitanum, er ekki alltaf kalt á Íslandi". En það er kannski alveg skiljanlegt, flestir hafa aldrei hitt neinn frá Íslandi.
Thor litli er aðeins farinn að venjast leikskólanum. Sarah (leikskólakennari) gaf honum súkkulaði síðast þegar hann fór heim því hann stóð sig svo vel. Thor kyssti hana náttúrulega á kinnina fyrir, en var mjög feiminn. Hann er enn með afa sinn á heilanum. Hann á einn lítinn kall frá Fisher-Price sem hann kallar afa. Því litli kallinn er með rautt hár. Hann er líka enn mjög hrifin af ljónum.
Við Thor fórum einmitt í dýragarðinn hérna í Perth í morgun. Hann er í göngufæri frá okkur. Þar sáum við ljón, sem fóru að vera mjög góð við hvort annað þegar við vorum að skoða þau. Vonandi sjáum við ljónaunga þegar við förum næst. Við sáum líka kengúrur, þær höfum við ekki séð áður. Nashyrninga, snáka og margt fleira. Blessunarlega höfum við ekki séð snáka hérna áður. Höfum bara séð nokkra maura, köngulær, flugur, engisprettur og tv0 kakkalakka. Bara köngulærnar vilja vera inni hjá okkur. En ryksugan sér um þær.
Ég verð að segja að lífið hinum megin við miðbaug er gott við okkur. Já og ekki má gleyma að vatnið fer öfugan sólargang þegar sturtað er niður í klósettinu.
Hafið það gott,
Áslaug

sunnudagur, mars 06, 2005 Mustang Sally

Þegar við vöknuðum í morgun sáum við þetta hinum megin við götuna.
Það var sem sagt Mustang félag vestur Ástralíu með bílasýningu í garðinum sem við búin við, Sir James Mitchell Park. Við drifum okkur því náttúrulega út og skoðuðum bílana. Ótrúlega vel við haldnir bílar frá því að Ford fór að framleiða Mustang árið 1964. Flestir voru árgerð 1964-1970 eitthvað svoleiðis. Mér varð strax hugsað til Valla bróður sem er mjög mikill Mustang áhugamaður. Ég get skráð þig í félagið ef þú vilt bróðir, maður þarf ekki að eiga bíl til að vera í því. Bara hafa áhuga á fornbíla sporti. Tók líka myndir ofan í húddin til að sýna pabba vélasafnara.
Við spókuðum okkur þarna um og fengum okkur grillaða pylsu og sátum í grasinu að horfa á heilu fjölskyldurnar merktar bílaframleiðandanum. Og tókum myndir af drossíunum sem við vildu eiga, en eigum ekki. Menn voru þarna að tala um alvöru amerískt stál og spila lög tengd Mustang. Alvöru áhugamenn en enginn þó tattoveraður sportinu.
Sunnudagskveðja,
Áslaug

laugardagur, mars 05, 2005 Besti matur á suður heimshveli

Verð bara að segja ykkur öllum hvað við borðuðum góðan mat í kvöld. Við keyptum grænar rækjur í gær og prófuðum að matreiða þær á grillinu. Þær voru alveg eins og maður vill hafa þær. Fullkomnar. Svo grilluðum við Ástralskt naut (rump steik) á New York vísu. Nautakjöt með gráðosti ofan á. Salat og pönnusteiktar kartöflur og hvítlaukssósa. Þetta var það gott að við gátum varla talað við matarborðið. Fengum okkur svo göngutúr meðfram Swan River eftir matinn. Áin var spegil stétt og miðborgin speglaðist í henni. Er við gengum þarna horfðum við á Kings Park upplýstan í gulu, rauðu og grænu ljósi. Hver vill ekki búa við svona aðstæður. Nb ég var úti að labba kl 19:30 á hlýrabol og táslunum.

Við erum alla veganna búin að útnefna máltíðina í kvöld "Velkomin til Ástralíu" Þannig þið sem nennið að leggja ferðina á ykkur fáið að prófa.
Södd og sæl,
Áslaug og Thor

Bar-B mate.
Jæja við erum búin að fjárfesta í grilli hérna. Enda alltaf veður til að grilla og svo er þetta stór þáttur í Ástralskri menningu að grilla. Thor fór í K-mart og keypti risa grill á tilboði því það er að koma haust hjá okkur. Við hjónin klóruðum okkur svo fram úr því að setja gripinn saman.

Síðan þá höfum við grillað kvölds og morgna.

Í gærkvöldi var svo haldin grillveisla með íslensku stelpunum, Auðbjörgu og Fjólu, sem við þekkjum hérna og norskum kærasta annarrar, Erlend. Við sátum svo úti til klukkan eitt um nóttina að spjalla. Því við erum líka búin að kaupa útihúsgögn og getum því núna nýtt garðinn.

Í kvöld verður svo frumraunin með shrimp on the Bar-B.
Lífið er að komast í fastar skorður hjá okkur. Maður er ekki eins sterkt með tilfinninguna að maður sé bara í fríi hérna. Erum farin að þekkja hverfið okkar, búin að finna slátrara sem við viljum verlsa við, stórmarkað sem er hagstæður o.s.frv. Ég er farin að fatta að ég þarf að læra og ég er meira að segja búin að klára fyrsta skólaverkefnið mitt.
Við tókum smá skoðunarferð um Perth síðustu helgi og nutum þess að vera í fríi. Skoðuðum tvær strendur Perth, af ég veit ekki hvað mörgum en þær eru nokkrar. Fórum á markaði í Subiaco og Fremantle sem eru hverfi hérna í borginni. Eyddum öllum sunnudeginum í Fremantle, með Auðbjörgu, Erlend og Fjólu. Skoðuðum mannlífið og markaði. Auðvitað stoppuðum við svo í einni skóbúð :)
Eigiði góða helgi
Áslaug

miðvikudagur, mars 02, 2005

Hæ allir,
Ákvað að koma með smá fullorðins blogg. Veit að barnið er sætt en síðustu færslur hafa bara verið myndir af Thor að gera hitt og þetta.
Skólinn er byrjaður hjá mér, mér líst vel á þetta allt saman. Ótrúlega spennandi að vera loksins komin á mína hillu. Krakkarnir í bekknum eru skemmtilegir og koma frá nokkrum löndum. Nokkrir Ástralir, ein frá Indlandi, ein frá Kanada, tvö frá USA og svo ég ein frá Íslandi. Við erum líka á ólíkum aldri þannig að það ætti að vera hægt að koma með mörg sjónarmið og skemmtilegar umræður í tímum. Tímarnir eru mikið þannig að nemendur eiga að tjá sig, flytja verkefni og ræða um námsefnið. Ég á að skila inn fyrsta verkefninu í næstu viku. Maður á ekkert að sitja auðum höndum og lesa svo bara fyrir próf.
Við erum að verða búin að koma okkur fyrir hérna á Coode stræti. Allir eiga rúm, við eigum borðstofuborð, sjónvarp, hirlsu undir það, sófaborð, sófinn er á leiðinni. Mjög Ástralskst grill, útihúsgögn og bíl. Erum búin að vera mjög dugleg að viða að okkur því sem við þurfum. Bráðum koma svo myndir af þessu öllu og nýja heimilinu.
Segi ykkur meira næst,
Áslaug

þriðjudagur, mars 01, 2005


Það er gott að fá sér vatn
Thor og Ã?slaug


Þegar hitinn er 30 gráður -
Thor og Ã?slaug

Powered by Blogger

Eldra blogg